27nóvember
Er svona að pæla í því að blogga bara á myspaceinu mínu, er orðið svo mikið nörd í þessu.. En ég hendi eflaust einhverju hérna inn.. einhvern tímann
Þannig að ef þú ert ekki með myspace.. þá er bara að fá sér eitt stykki solleiðis..
www.myspace.com/bugaziSeee ya
22nóvember
tja.. er reyndar ekki að nenna að blogga eins og er þessa dagana eins og sést hefur kannski en þetta fer allt að koma vonandi
Góðir hlutir gerast hægt... er haggi?? 
vil samt taka það fram að það eru töluvert margar staðreyndarvillur í seinustu færslu... mætti halda að Bjössi hafi bloggað fyrir mig... humm!! gæti verið!
later later
Drean....
29október
Vó vó vó!
Hver hefði búist við því að ég mundi ekki fara að djamma um helgina?? ekki einu sinni ég.. En ég er nú alltaf að koma sjálfri mér á óvart þannig að ég gerði nú barasta ekki neitt!
Var bara sofnuð fyrir miðnætti á föstudag. en á laugardaginn fórum við Harpa aðeins út að reyna að versla en ekkert gekk (kannski vegna peningaleysis) og enduðum við á því að fara í elko og prófuðum guitar hero og þetta er svo mikil snilld að við splæstum svona á okkur(áttum allt í einu pening) þótt við eigum ekki einu sinni ps2 tölvu.. Fórum svo bara heim og spiluðum allt kvöldið, bara verst hvað ég er fokkings tapsár.. þó ég sé bara að keppa við sjálfa mig
Það verða allir að spila þennan leik.. þetta er snilldin ein!
Á einhver meðalstóra ferðatösku til að lána mér? ég á bara risa rauðan hlunk sem ég gæti smyglað heilli fjölskyldu með mér til landsins! en nenni ekki að standa í því!
3 dagar til stefnu.. ekki er það slæmt! 
Er líka komin í myspace heiminn þannig að ef einhver hefur áhuga þá er slóðin www.myspace.com/bugazi
later
24október
Vá sko hvað það er búin að vera þétt dagskrá í Október!
Frá síðasta bloggi er ég bara búin að vera á útopnu!
fór austur til ma og pa í ammælismat á mánud, sníkja gjafir og gefa litlu sys þar sem hún á ammæli sama dag og ég,

Átti svo ammæli á þriðjud. og fór út að borða með Ernu minni á Askinum og fór svo í bíó með Hörpu skvís.. Fékk líka alveg yndislega ammælisgjöf frá Jönu og Stebba þar sem þau eignuðust lítinn prins á mínum degi og ég ekkert smá montinn. Búið að nefna litla stubbinn því fallega nafni Elvar Máni. Til hamingju elskurnar..

Svo á miðvikud. byrjaði Airwaves og fórum við Harpa á gaukinn og sáum Hoffman, We are scientists og Diktu, meikuðum svo bara 3 lög með nr núll. Fínasta byrjun en ýmsar skoðanir á því samt. 3 öl teknir þetta kvöld

fimmtud. brjálað að gera í vinnu og svo beint á nasa að sjá Tilly and the wall sem mér fannst skemmtilega töff og skemmtileg, steppið alveg að svínvirka á mig og svo þar á eftir klaxons sem ég var að fíla líka svona vel! fórum svo yfir á gaukinn og sáum Datarock og svo bara snemma heim minnir mig vegna gífurlegrar þreytu! 6 öl þetta kvöld

Föstudagurinn var frekar súr í vinnunni þar sem ég fann fyrir smá einkenni sem kennast við þynnku! en gleymdi því nánast þar sem mig hlakkaði fyrir kveldinu

sá fyrst 120 days frá Norge og voru þeir yfir sig cool á því !! Magnaðir dúddar þar á ferð. Síðan var Mammút en mér finnst þetta svo mikil Bjarkarstæling á söng nema að björk getur sungið! Fílaði ekki alveg en sumt samt alveg ágætt.. erfitt að útskýra.. svo komu Jeff who? og voru frekar lengi að koma sér af stað greyin (en kannski ekki alveg þeim að kenna) en það myndaðist geggjuð stemmning og eru eflaust margir fúlir að þetta hafi verið þeirra síðustu tónleikar í bili.. eru víst farnir í pásu.
Eftir þeim komu svo svaðallegir töffarar from Canada engir aðrir en Wolf Parade og var ég að fíla þá alveg í botninn á mér

Síðan var skundað á Nasa og sáum þar Brain police og voru þeir alveg í lagi og síðan töffararnir í Dr. Spock alltaf finnst mér þeir jafn mikil krútt... hehehehehe ef krútt skyldu kallast

Eftir þetta allt saman var ég orðin frekar ölvuð og lét bara henda mér heim!! Sem var svo sem ágætt, daginn eftir allavegana! allavegana fleiri en 6 öl þetta kvöld

Var svo bara dregin snemma fram úr á laug og fór að borða með Ingu og Kristínu á Oliver og þar skipst á slúðri en ég var léglegust í því, þori ég að fullyrða

fór svo bara heim og ætlaði að leggja mig aftur en hætti bara við og fékk mér í staðinn bara bjór og í vörina og fór að ryksuga.. bjórinn gerir allavegana heimilisverkin skemmtilegri hjá mér!!! fór svo um kvödið á Nasa og var þar allan tímann og sá Benny crespo´s gang, fields sem voru alveg í lagi.. Brazilian girls frá UK sem voru töff og söngkonan ekkert smá svöl.. Halló halló fjúdd fjú!

Hermigervill kom þar á eftir og gat ég alveg dillað bossann sinn með! margt mjög svalt hjá honum.. síðan enduðu vibjóðsgaurarnir Dr. mister & mister handsome kvöldið... Ég er nú ekkert að fíla þá í vöfflur en þeir ná samt upp stemmningu með öllum þessum foxy tussum dansandi á sviðinu! Eftir þetta var farið að leita að Danaveldi með Maríönnu og þar sem það fannst ekki var þrætt nokkra staði og svo fór mín bara heim !! huhummmm....
Á sunnudeginum var ég orðin frekar lúin eftir allt þetta svínerí og með nokkurns konar bömmer þó ég hafi ekkert gert af mér.. en svona er þetta nú bara!
Það var ennþá smá þynnku-þreytu-púki i mér í dag en þá þurfti ég að vinna í 14 tíma takk fyrir og góðan dag.. bara svona til að kæta kellu.. En þetta hafðist aldrei þessu vant!
Svo er nú bara stutt í að mín fari úr landi..aðeins 9 dagar.. Bjössi hringdi í mig í gær að utan og þá vara aðeins 27 stig hjá honum.

ekki slæmt það og bað hann að heilsa öllum, þessi elska. hlakka ekkert smá til að hitta hann aftur!
Er nú bara að spá í að fara að leggja mig!
Airwaves hreint út sagt geggjað og er þetta skylda á alla á næsta ári!!
Hasta pronto..... Drean
16október
Vá sko... Það er ekki svo langt síðan að ég var hálfpartinn að monta mig yfir því að vera búin að minnka drykkju og djamm um helming..
Var ekki lengi að vinna það upp og tók bara 3 daga sukk á þetta þessa helgina

Byrjaði á því að fara á forsýningu á Jackass 2 myndina með Hörpu og var hún svo mikil snilld að það verða allir að fara á þessa ræmu.. Hvað dettur þeim ekki í hug? Vil ekkert segja meira frá myndinni því þá skemmi ég bara fyrir

Ákváðum svo að kíkja á Gaukinn á Rokktóbeerfest að fagna því að Harpa væri komin í lögguskólann.. Til hamingju sæta mín! Fallegasta löggan á landinu!

Allavegana þá sáum við Pétur Ben og Royal Fortune. Helvíti góðir alveg og sumir líka fokk myndarlegir! allavegana söngvararnir.. újé! Það var gripið í öl aldrei þessu vant og hressleikin eftir því. Hitti líka skemmtilegt fólk og var endað með Nonna og Hörpu upp í rúmi og sósan út um allt !! hehe

Frekar þreytt og pínku þunn í vinnunni á föstudag en hafði eiginlega ekki tíma til að hugsa út í það þar sem ég fór strax í grímubúninga afmæli hjá honum Pésa sem var haldið á Ölver og þar var einmitt líka fengið sér bjór og alveg nóg af honum.. Lagið tekið nokkrum sinnum!! hver kannast ekki við Total Eclipse of the Heart með Bonnie Tyler! Shiiiiii!! Allavegana fínasta skemmtun og voru margir búningarnir frekar flottir og auðvitað var skellt sér í gallanum í bæinn og fengin smá athygli!
Svo rann upp laugardagurinn mínus þynnka (sem betur fer) og var þá tekið til hendinni fyrir míns eigins afmæli.. Fólk tíndist svo inn um kvöldið og var komin líka svona rífandi stemmning.. Singstar einokað af mér og Svenna og sömdum við líka einn slagara sem ég kýs að kalla Bring it on! En textin er einmitt mjög djúpur og flókinn og takturinn frekar þéttur.....
Bring it on yo... yo yo
bring it on yo.. yo
I said bring it on... bring it on,
bring it on.......................

og þar frameftir götunum!
Hljómaði lagið samt betur standandi upp á borði með viftuna í gangi!
*Skemmtilegt kvöld í alla staði
*Borðaði nóakropp úr rassaskoru

*Moking bird tekinn
*Singstar að gera góða hluti
*Hvítvínið teigað á núll einni
*Varamannskeppni..
*Búin að gefa öllum köttinn minn
*Fékk að heyra ansi góðar sögur um mig þar á meðal hverngi Ívan kynntist mér, sem var einhvern vegin svona:
Ég var að labba framhjá Alþingishúsinu þegar ég sá Andreu í fyrsta skiptið, þar sat hún á bekk og var búin að gubba yfir sig alla.. þá kallaði hún: áttu sígó? og ég hugsaði; vá er hún þess virði að gefa henni sígó! en ákvað nú að gefa henni eina sígó, greyinu! Var svo bara að rölta í burtu og þá kallaði hún: Ríddu mér, ríddu mér! En ég labbaði bara í burtu !!
hahahahahaha algjör snilld

Svo var bara haldið í bæinn og skellti ég mér auðvitað á Gaukinn á Jet black Joe... Þeir voru fínir minnir mig en þarna var ég víst orðin mökkölvuð og fór bara heim eftir það.
Takk fyrir mig elskurnar fyrir snilldar kvöld!
Bring it on.....................
Later...............................Drean
11október
Hvers á ég að gjalda.. Hvað gerði ég af mér...

Fyrir kannski klukkutíma síðan var ég RÆND! eða réttara sagt veskinu mínu var stolið! Ég var heima í mat og fór inn í herbergi í tölvuna og hallaði hurðinni svo kötturinn kæmist ekki inn. Kem svo aftur fram og þá er útidyrahurðin opin og búið að taka veskið mitt. sem betur fer var ég með debetkortið í vasanum.. en mér er alveg fokkings sama. Hringdi náttla á lögguna og er núna að bíða eftir þeim því þeim seinkaði fóru í annað verkefni fyrst.. Vá hvað það er til að toppa pirrleikan núna! Ég er brjáluð! Er í móðursýkiskasti og er komin með magasár
Þetta er pottþétt póstmaðurinn !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
10október
Jæja þá er sú gamla búin að panta sér enn eina útlandaferðina

Er semsagt að fara til Spánar, nánar tiltekið til Torrevieja til hans Bjössa minns.. má nú ekki gleyma honum alveg

fer út 1.nóv og verð í viku.. djamma, versla og hitta vinina og hlýja mér aðeins.. verður bara snilldin ein!
Annars er bara brjálað að gera framundan... Vinna og læra eins og venjulega, svo er það afmæli hjá Pésa pung á föstudaginn og er grímubúningaþema þannig að ég hugsa að mín dusti bara rykið af kollunni og fari í Jackie fílinginn.. hver kannast ekki við þá snilld!!!

Þannig að daman verður skrautleg niðrí bæ!
Seinast þegar ég fór í búning niðrí bæ hitti ég ekki ómerkari mann en Quentin Tarantino.. þannig að það er spurning hver það verður núna. Fékk allavegana athygli út á þetta en er það ekki einmitt það eina sem skiptir máli?

Svo á laugardaginn þá ætlar bara Drean sjálf að halda upp á afmælið sitt! Kominn tími til að eldast(to be cooked) Þannig að það er aldrei að vita hvort þér verði boðið. Allavegana þá commentiði bara ef að þið viljið koma og ég sé til hvort það sé í lagi

Allavegana á eitthvað af fólki von á smsi um teitið! Ekkert sérstakt þema.. nema kannski bara bjór og brennivín, og svo vonandi skellt sér á Gaukinn á Jet black Joe síðar um kvöldið...
Svo er það Airwaves í vikunni á eftir og er það eitthvað sem enginn má missa af! ræðum það seinna...
Ætla að fá mér eins og einn öl núna og njóta þess að vera smá bytta.
Rock on....................... Drean
08október
Eins og svo oft áður þá fór ég að djamma um helgina

Fór á staffadjamm á föstudaginn sem var svo súrt að ég nenni ekki að segja frá því.. fór bara heim kl.2 eða 3 og var eiginlega bara mjög fegin að taka svona stóra ákvörðun!
Á laugardeginum var ég líka svona glimrandi hress og skellti mér með Elínu og Pésa á Styleinn og Kolaportið.. Alltaf jafn gaman og fróðlegt að fara þangað.. Það var gramsað og keypt sér eitthvað dótarí sem á aldrei eftir að notast.

Týpískt ég og Elín!
Svo kíkti Inga til mín um kvöldið og vorum við nánast að hittast í fyrsta skiptið síðan við báðar komum heim að utan og vorum við að skiptast á sögum frá útilandinu og voru þær sumar hverjar helvíti krassandi !! greinilegt að ég og Inga þurfum að fara út saman einhvern tíman... Guð minn góður

Eftir að við vorum búnar að róa okkur niður af sögunum fórum við í eitthvað partý á laugarveginum sem var bara lala allavegana fékk ég frítt að drekka sem skemmir aldrei fyrir! Fórum svo bara á röltið.. og kíktum inn á þessa helstu staði! Inga edrú og ég svona líka hress og vitlaus.
*Ágætis kvöld, rólegt og gott.
*Þoli ekki þegar fólk svarar ekki í símann.
*Sæti frændi frumsýndur sumum

*Fékk far með Ingu sætu heim!
*Endaði ein heima, Thank God!
*Strákar hættiði að hringja eftir að ég er komin heim, ég þarf minn svefn

*Vaknaði ber að ofan samt í öllum fötunum... skil ekki alveg!
*Ég er hrein mey, á ný

Later....................Drea drykkjubolti
P.S. Inga mín við þurfum að athuga þetta með rafmagnið og bensínið! HAHAHA
Rafmagnið eyðir ekki bensíni, allavegana ekki á mínum bíl!